Þú hefur alltaf verið til staðar fyrir alla aðra, en oft gleymt sjálfri þér.

Kannski er kominn tími til að vera til staðar fyrir þig.

Í lífsþjálfun skapa ég rými fyrir þig til að staldra við. Með góðum spurningum, hlustun og stuðningi færðu tækifæri til að kynnast sjálfri þér á ný og taka fyrstu skrefin í þá átt sem þú velur að fara.

Kannast þú við þetta?

Lífið er kannski ekki slæmt. Samt finnurðu að eitthvað vantar.

Þú hefur sinnt fjölskyldunni, vinnunni og öllu því sem þurfti að halda gangandi.

Þú hefur verið sú sem hugsar um aðra, tekur ábyrgð og lætur hlutina ganga upp.

En einhvers staðar á leiðinni fórstu sjálf aftar og aftar í röðina.

Núna langar þig að gera eitthvað fyrir þig. Þú finnur að breytinga er þörf en veist ekki hvar þú átt að byrja.

Kannski kannastu við að:

  • eiga loksins meiri tíma en vita ekki hvað þú átt að gera við hann
  • finna fyrir orkuleysi, leiða eða tómarúmi
  • fylgjast með lífi annarra en koma þér ekki af stað í þínu eigin
  • langa að prófa eitthvað nýtt en hætta við áður en þú mætir
  • setjast í sófann þó þú vitir að hann sé ekki að gefa þér það sem þú þarft
  • sakna konunnar sem þú varst áður
  • velta fyrir þér: „Hvað varð eiginlega um mig?“

Þetta þýðir ekki að þú sért löt, veik eða vanþakklát.

Kannski hefurðu einfaldlega verið til staðar fyrir alla aðra svo lengi að þú þarft að læra aftur að vera til staðar fyrir sjálfa þig.

Sigga Gréta, lífsþjálfi
Um Siggu Grétu

Ég þekki þessa tilfinningu af eigin raun.

Ég heiti Sigga Gréta og er lífsþjálfi.

Fyrir nokkrum árum áttaði ég mig á að ég hafði eytt stórum hluta orkunnar í að sinna öðrum. Ég var þreytt, bæði líkamlega og andlega, og hafði misst tengslin við það sem veitti mér gleði og lífsfyllingu.

Ég hafði lengi verið dugleg að gera góða hluti fyrir fólkið í kringum mig en áttaði mig á því að ég hafði sjaldan sýnt sjálfri mér sömu umhyggju.

Þegar ég fór að vinna markvisst í sjálfri mér lærði ég að skilja hugsanir mínar, sjá hvernig þær höfðu áhrif á líðan mína og taka lítil en mikilvæg skref í átt að breytingum.

Ég fann mig ekki aftur á einni nóttu.

Ég fann mig með því að staldra við, vera heiðarleg við sjálfa mig og hætta smám saman að skilja mig alltaf eftir.

Í dag styð ég konur sem eru á svipuðum stað.

Konur sem vilja breytingar en þurfa öruggt rými, raunverulegan stuðning og einhvern sem hjálpar þeim að finna leiðina áfram án þess að dæma þær eða segja þeim hvernig þær eigi að vera.

Sigga Gréta

Einkalífsþjálfun

Fjögur samtöl til að finna þig aftur og byrja að hreyfa þig áfram.

Þú þarft ekki að mæta með skýrt markmið eða fullkomna áætlun. Þú þarft ekki einu sinni að vita nákvæmlega hverju þú vilt breyta.

Við byrjum þar sem þú ert.

Í fjórum einkasamtölum færðu rými til að tala upphátt um það sem hefur verið að gerast, skoða hvað heldur þér fastri og veldur þér vanlíðan og finna næstu skref sem henta þér og þínu lífi.

Fjögur einkasamtöl 35.000 kr.

Kynningarverð

Í samtölunum færðu:

  • öruggt og hlýtt rými þar sem þú mátt vera algjörlega þú sjálf
  • hlustun án dóma eða fyrirfram ákveðinna svara
  • spurningar sem hjálpa þér að sjá sjálfa þig og stöðu þína skýrar
  • stuðning við að skilja hugsanirnar og mynstrin sem halda þér fastri
  • hjálp við að finna hvað þú vilt í raun og veru
  • raunhæf skref sem þú treystir þér til að taka
  • blíðan en heiðarlegan hnykk þegar þú ert að fara aftur í gamla vanann

Fyrir hverja er þetta?

Einkalífsþjálfunin gæti hentað þér ef:

  • þú ert orðin þreytt á að setja þig alltaf síðasta
  • þig langar að gera eitthvað fyrir sjálfa þig en kemur þér ekki af stað
  • þú finnur fyrir óöryggi eða hefur misst trúna á sjálfa þig
  • þú veist að þú vilt breytingar en sérð ekki leiðina áfram
  • þú hefur prófað bækur eða netnámskeið en vantar persónulegri stuðning og eftirfylgni
  • þú vilt geta talað við manneskju sem hlustar, spyr og hjálpar þér að sjá það sem þú sérð ekki ein
  • þig langar einfaldlega að líða betur

Þetta er ekki:

  • meðferð
  • hraðvirk lausn
  • enn einn listinn yfir allt sem þú ættir að gera
  • krafa um að þú verðir allt önnur manneskja

Þetta snýst ekki um að breyta öllu lífinu í einu.

Þetta snýst um að hætta að bíða eftir að þér líði öðruvísi og byrja að velja sjálfa þig, eitt skref í einu. Þannig breytist líðanin.

Þú þarft ekki að vera tilbúin að breyta öllu.

Þú þarft aðeins að vera opin fyrir því að byrja.

Umsagnir

Orð frá konum sem hafa unnið með Siggu

Heppnin var með mér þegar ég komst í kynni við lífsþjálfun. Ótrúlegt hvað svona samtalsmeðferð getur gert fyrir sálina og lífsviðhorfið, tala nú ekki um hvað hún getur einfaldað lífið. Hér á máltækið við: „Að hika er sama og tapa.“

Sigga Guð

Það létti svo á mér andlega að segja það upphátt og tala um það sem olli vanlíðan, sérstaklega við óháðan aðila. Sigga hlustaði, spurði og opnaði augu mín fyrir því hversu mikil áhrif hugsanir mínar höfðu á líðan mína. Vandamálin hurfu ekki, en mér líður mun betur.

Birgitta

Mjög magnað hvernig einn tími hafði mikil áhrif á hugsanagang minn gagnvart sjálfri mér. Ég var með markmið sem ég náði ekki að fylgja eftir og sveik því stöðugt loforð við sjálfa mig. Strax eftir fyrsta samtal við Siggu var komið plan og í næsta samtali var framkvæmdin hafin og fleiri venjur höfðu bæst við.

Herborg

Hvað varð um sjálfa mig? — ókeypis vinnubók eftir Siggu Grétu
Ókeypis leiðarvísir

Hvað varð um mig?

21 spurning sem hjálpuðu mér að finna sjálfa mig aftur.

Kannast þú við að horfa á lífið þitt og hugsa:

„Hvenær hætti ég að hugsa um sjálfa mig?“

Kannski hefur þú eytt mörgum árum í að sinna fjölskyldu, vinnu og öllum í kringum þig.

Núna hefur þú kannski meiri tíma en einhvern veginn veistu ekki alveg hvað þú átt að gera við hann.

Þú finnur að eitthvað vantar.

Ekki af því að lífið sé endilega slæmt, heldur af því að þú ert farin að sakna sjálfrar þín.

Þess vegna bjó ég til ókeypis leiðarvísinn Hvað varð um mig?

Í honum finnurðu 21 spurningu sem hjálpa þér að staldra við, skoða líf þitt með nýjum augum og rifja upp hvað skiptir þig raunverulega máli.

Leiðarvísirinn er fyrir þig ef:

  • þú finnur að þú hefur gleymt sjálfri þér
  • þú veist að eitthvað þarf að breytast en veist ekki hvar þú átt að byrja
  • þú vilt gefa sjálfri þér nokkrar heiðarlegar mínútur
  • þú vilt byrja rólega, með einni spurningu í einu

Það þarf ekki að breyta öllu í dag. Stundum byrjar breyting með einni heiðarlegri spurningu. Kannski verður ein þeirra byrjunin á næsta kafla hjá þér.

Algengar spurningar

Áður en þú tekur fyrsta skrefið

Þarf ég að vita nákvæmlega hverju ég vil breyta?

Nei. Margar konur finna fyrst og fremst að eitthvað vanti eða að þær séu fastar. Hluti af vinnunni okkar er að hjálpa þér að skilja hvað þú þarft og hvað skiptir þig máli núna.

Hvað gerist í fyrsta samtalinu?

Við byrjum á því að skoða hvar þú ert stödd og hvað hefur verið að gerast. Þú færð tíma til að tala og ég spyr spurninga sem hjálpa þér að sjá stöðuna með skýrari augum.

Er lífsþjálfun það sama og meðferð?

Nei. Lífsþjálfun kemur ekki í stað sálfræðiþjónustu eða annarrar heilbrigðisþjónustu. Hún snýr að núverandi stöðu þinni, því sem þú vilt skapa fram undan og þeim skrefum sem geta hjálpað þér að komast þangað.

Hvað ef ég hef byrjað á mörgu áður en gefist upp?

Þá ertu ekki ein. Þú þarft ekki meiri skömm eða annan lista sem þú þarft að klára ein. Við vinnum út frá þér, þínum aðstæðum og því sem er raunhæft fyrir þig núna.

Kynningarsamtal

Þú þarft ekki að ákveða allt núna.

Ef þú finnur að þú vilt breytingar en ert ekki viss um hvort einkalífsþjálfun sé rétta skrefið geturðu byrjað á ókeypis 30 mínútna kynningarsamtali.

Í samtalinu:

  • segir þú mér aðeins frá því hvar þú ert stödd
  • skoðum við hvað þú vilt að verði öðruvísi
  • færðu að kynnast mér og því hvernig ég vinn
  • finnum við út hvort einkalífsþjálfunin mín henti þér

Þetta er rólegt og óformlegt samtal.

Þú þarft ekki að undirbúa þig, hafa réttu orðin eða vita nákvæmlega hvað þú þarft.

Þú mátt bara mæta eins og þú ert.

Ef dagatalið birtist ekki geturðu skoðað lausa tíma og bókað hér.

Fyrsta skrefið

Það er ekki of seint að byrja að hugsa um sjálfa þig.

Þú þarft ekki að vita hvert öll leiðin liggur.

Fyrsta skrefið getur verið að sækja leiðarvísinn, bóka samtal eða einfaldlega viðurkenna að þú viljir eitthvað meira.

Þú mátt velja sjálfa þig núna, þú átt það inni hjá sjálfri þér.